Nýr Vörður kemur í dag

Deila:

Nýr Vörður ÞH 44 kemur til Grindavíkurhafnar í dag en útgerðarfyrirtækið Gjögur hf sem gerir út ísfiskskipin Vörð og Áskel frá Grindavík fór í að endurnýja þessa ísfisktogara. Töluverð endurnýjun hefur verið í fiskiskipaflota Í Grindavík en auk Varðar og Áskels er nýr Páll Jónsson væntanlegur um mánaðarmótin en hann er í eigu Vísis hf. Þá er stutt síðan Þorbjörn hf. fékk nýjan togara, Tómas Þorvaldsson, í sinn flota samkvæmt frétt á grindavik.is

Deila: