Hátt í 40% aukning í útflutningi eldisafurða

Deila:

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam 1.400 milljónum króna í september samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Þetta er nokkuð hægari aukning en verið hefur það sem af er ári en engu að síður veruleg, eða um 38% á milli ára og hefur útflutningsverðmæti eldisafurða aldrei áður verið meira í septembermánuði. Gengi krónunnar var að jafnaði ríflega 7% veikara í september síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra miðað við gengisvísitölu krónunnar. Er því um að ræða 28% aukningu í verðmætum í erlendri mynt samkvæmt frétt á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi..

Stóraukin framleiðsla á eldislaxi drifkraftur
Á fyrstu 9 mánuðum ársins nemur útflutningsverðmæti eldisafurða rúmlega 16,8 milljörðum króna. Á sama tímabili í fyrra var útflutningsverðmæti eldisafurða komið upp í rúma 9,6 milljarða króna og nemur aukningin í krónum talið á milli ára 75%. Að teknu tilliti til gengisáhrifa nemur aukningin rúmlega 56% en gengi krónunnar var að jafnaði 10% veikara á fyrstu 9 mánuðum ársins en á sama tímabil í fyrra. Það er stóraukin framleiðsla á eldislaxi sem skýrir þessa aukningu og er útflutningsverðmæti lax 90% meira á fyrstu 9 mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Á myndinni hér fyrir neðan má jafnframt sjá að útflutningsverðmæti eldisafurða er nú þegar orðið 20% meira en það hefur mest farið upp í á heilu ári sem var árið 2017.

 

Deila: