Héraðssaksóknari með mál Samherja til meðferðar

Deila:

Héraðssaksóknari hefur mál Samherja til meðferðar. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Hann segir í samtali við fréttastofu ruv.is að það sem kom fram í þætti Kveiks um starfsemi Samherja í Namibíu í gærkvöldi verði tekið til rækilegrar skoðunar, auk annarra gagna sem embættið hefur aflað sér. Þar er fullyrt að Samherji hafi greitt umtalsverðar mútur til að afla sér veiðiheimilda við strendur landsins samkvæmt skjölum sem Wikileaks hefur undir höndum.

„Jóhannes Stefánsson, sá sem lak Samherjaskjölunum til Wikileaks, hefur þegar gefið saksóknara skýrslu um aðkomu sína að Samherja. Þetta staðfestir lögmaður Jóhannesar í samtali við fréttastofu.

Í umfjöllun Kveiks um Samherjaskjölin kom fram að yfirvöld á Íslandi, í Noregi og í Namibíu hefðu vitneskju um málið. Samkvæmt gögnunum hefur Samherji greitt háttsettum stjórnmála- og embættismönnum í Namibíu hundruð milljóna í þeim tilgangi að komast yfir eftirsóttan fiskveiðikvóta.

Þetta sýna gögn sem lekið var til Wikileaks og Kveikur hefur rannsakaði að undanförnu og byggir umfjöllun sína á. Rannsóknin var gerð í samvinnu við Al Jazeera Investigates og Stundina.

Samherji hefur hagnast verulega á starfsemi sinni í Namibíu og notfært sér alræmt skatta skjól,“ segir í frétt ruv.is

 

Deila: