Íslenskri síld landað í Neskaupstað

Deila:

Íslenskri sumargotssíld hefur verið landað í Neskaupstað að undanförnu. Beitir NK landaði um 1.600 tonnum sl. mánudag og í kjölfar hans kom Margrét EA og landaði um 1.900 tonnum. Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti segir að aflinn hafi verið breytilegur í veiðiferðinni.

„Það var misjöfn veiði en aflinn fékkst í sjö holum og það var lengi dregið eða í átta til tólf tíma. Við vorum allan tímann að veiðum í Faxadýpinu. Besta holið gaf 500 tonn en síðan voru þetta gjarnan um 200 tonna hol,“ segir Tómas í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Börkur NK hélt til síldveiða í mánudagskvöld en gert er ráð fyrir að Beitir haldi fljótlega til kolmunnaveiða.

 

Deila: