Auglýsa eftir togurum til stofnmælinga

Deila:

Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, hefur auglýst eftir tilboðum vegna tímabundinnar leigu á tveimur togurum til stofnmælinga.

Um er að ræða útboð vegna NA svæðis og S svæðis til eins árs (2020) með möguleika á framlengingu til fleiri ára ef aðilar sannmælast um það. Gert ráð fyrir að verkefnið taki um þrjár vikur frá lokum febrúar fram í mars.

„Niðurstöður úr verkefninu eru mikilvægar við mat á stofnstærð botnfiska og árlega aflaráðgjöf. Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1985 og eru teknar hátt í 600 stöðvar hringinn í kringum landið. Þar af eru um 155 stöðvar teknar á hvoru þeirra svæða sem nú er boðin út,“ segir í frétt frá Hafró.

Leiga er greidd með aflamarki.

 

Deila: