Tveir smábátar sukku á Akureyri

Deila:

Tveir litlir smábátar sukku við flotbryggju á Akureyri í gærmorgun eða fyrrinótt.

Samkvæmt heimildum Auðlindarinnar virðist annar báturinn hafa sokkið þegar lega gekk fram úr pakkningu við öxul bátsins. Þyngdin dró við það ramp flotbryggjunnar niður og svo annan bát, sem bundin var í næsta bili. Amk. annar báturinn er kominn  á þurrt en gera má fyrir að töluvert tjón hafi orðið á búnaði bátanna.

Deila: