Íslandsstofa skipuleggur sýningu í Kína

Deila:

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslenskra aðila í sjávarútvegssýningunni China Fisheries & Seafood Expo sem haldin verður dagana 7.- 9. nóvember 2018 í Qingdao í Austur Kína.

Guðný Káradóttir sér um að kynna sameiginlega hagsmuni sjávarútvegs, ábyrgar veiðar, vottun undir merkjum Iceland Responsible Fisheries sem og markaðsmál. Á sýningunni verður dreift bæklingi á kínversku um íslenskan sjávarútveg, vottun og helstu fisktegundir.

Fjöldi sýnenda og gesta á China Fisheries & Seafood Expo hefur meira en tvöfaldast á undanförnum árum og er sýningin stærsta sinnar tegundar í Asíu með yfir 28.000 gesti og um 1400 sýnendur. Sýningin er m.a. ætluð fyrirtækjum í vinnslu sjávarafurða, framleiðslu tækni- og tækjabúnaðar, sem og öðrum sem sinna þjónustu við sjávarútveginn.

Berglindi Steindórsdóttur sýningarstjóri hefur umsjón með þjóðarbás Íslands á sýningunni.  Nánari upplýsingar um China Fisheries & Seafood Expo er að finna á vef sýningarinnar.

 

Deila: