Tundurdufli eytt

Deila:

Um hádegisbil á sunnudag hafði skipstjóri íslensks togskips samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að djúpsprengja hefði komið í veiðarfæri skipsins. Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út og hélt áleiðis til Siglufjarðar en skipið var á siglingu norður af landinu og áætlaði að landa í bænum. Séraðgerðasveitin var komin á Siglufjörð í gærkvöld og hélt strax til móts við skipið á slöngubát. Á öðrum tímanum í nótt var sveitin komin um borð í skipið og hífði djúpsprengjuna sem reyndist vera tundurdufl í bátinn og fór með það í land.

Um hádegisbil í dag var farið með tundurduflið út á Siglunes þar sem því var eytt. Um var að ræða breskt tundurdufl frá seinni heimsstyrjöldinni og enn þann dag í dag kemur það reglulega fyrir að um áttatíu ára gömul vígtól komi í veiðarfæri íslenskra fiskiskipa. Landhelgisgæslan þarf reglulega að eyða slíkum sprengjum sem geta reynst stórhættulegar, sérstaklega í ljósi aldurs þeirra og hugsanlegrar tæringar.

Sjaldan er ein báran stök því slökkviliðsstjórinn á Siglufirði hafði einnig samband við séraðgerðasveitina sem var stödd í bænum vegna tundurduflsins og tjáði sprengjusérfræðingunum að í morgun hafi hann fengið vitneskju um áratugagamlar hvellhettur fyrir dínamít sem nauðsynlegt væri að eyða. Sveitin brást hratt og vel við beiðni slökkviliðsstjórans og eyddi hvellhettunum örugglega. Dagurinn á Siglufirði var því nokkuð annasamur fyrir sprengjusérfræðingana.
https://youtu.be/wUlaWpIuq8A

 

 

Deila: