Erfiður túr en gott ár hjá Blængi

Deila:

Frystitogarinn Blængur NK er að landa í Neskaupstað í síðasta sinn á þessu ári. Aflinn í veiðiferðinni var rúmlega 900 tonn en skipið millilandaði 520 tonnum 28. nóvember. Heildarverðmæti aflans í veiðiferðinni var 282 milljónir króna. Bjarni Ólafur Hjálmarsson var skipstjóri fyrri hluta veiðiferðarinnar en Theodór Haraldsson síðari hlutann.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Theodór og spurði hvernig síðari hluti veiðiferðarinnar hefði gengið. „Þetta gekk alls ekki vel. Síðari hlutinn var 19 dagar og þar af fóru fimm sólarhringar í keyrslu og flótta undan veðri. Við lágum í sólarhring í vari undir Grænuhlíð og í höfn í Hafnarfirði vorum við í tvo sólarhringa. Þetta var stanslaus bölvaður flótti. Við reyndum fyrst við ufsa úti fyrir Norðurlandi og síðan á Halamiðum. Síðustu dagana var svo farið í karfa. Við veiddum gullkarfa á Jökultungunni og það gekk þokkalega, en síðan var farið í djúpkarfa í Skerjadýpi og Grindavíkurdýpi en það gekk ekki nógu vel. Almennt má segja að þessi hluti veiðiferðarinnar hafi einkennst af brælu og flótta undan veðri en á móti kemur að það var blíða í fyrri hluta hennar,“ segir Theodór.

Árið sem nú er að líða er langbesta ár Blængs bæði hvað varðar aflamagn og aflaverðmæti. Aflinn á almanaksárinu er tæp 7.100 tonn og verðmæti hans eru 2.100 milljónir króna. Skipstjórarnir á Blængi, þeir Bjarni Ólafur Hjálmarsson og Theodór Haraldsson, eru afar ánægðir með árið, en þeir benda á að þetta sé fyrsta heila árið sem Blængur er gerður út. Einhverjar frátafir frá veiðum hafa einkennt fyrri ár vegna framkvæmda við skipið. Fullvíst má telja að afli Blængs á árinu sé mesti ársafli austfirsks togara.

 

Deila: