Einstakar neðansjávarmyndir

Deila:

Erlendur Bogason kafari hefur um langt árabil safnað myndum af sjávarlífverum og hafsbotni. Á vefnum sjavarlif.is eru birtar einstakar myndir sem hann hefur tekið neðansjávar við Íslandsstrendur.

„Efnið mun nýtast við rannsóknir og fræðslu fyrir sjávarútveg og almenning. Myndefnið flokkast í nokkra flokka og er safn ljósmynda og myndskeiða sem færir okkur einstaka sýn á veröldina í undirdjúpum við Ísland.

Í nánustu framtíð munu fleiri flokkar og tegundir bætast við í þetta frábæra neðansjávarmyndasafn sem er aðgengilegt bæði á íslensku og ensku. Textana skrifaði Hreiðar Þór Valtýsson, lektor í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri og Blek ehf. setti upp og hannaði vefinn.

Verkefnið er styrkt af Rannsóknarsjóði síldarútvegsins, Fiskifélagi Íslands og Háskólanum á Akureyri,“
segir í frétt á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Deila: