Verð á ýsu hækkar

Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var í gær var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur breytist ekki
Óslægður þorskur hækkar um 3,3%
Slægð ýsa hækkar um 4,7%
Óslægð ýsa hækkar um 5,8%
Karfi breytist ekki
Ufsi hækkar um 3,5%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tók gildi 4. ágúst 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

 

Deila: