Samherji kaupir Ekkó toghlera

Deila:

Björgúlfur EA á veiðum á miðunum.

Samherji hefur keypt og tekið í notkun nýja Ekkó toghlera í ferskfisktogaranum Björgúlfi EA. Toghlerar frá Ekkó hafa verið í þróun í um áratug og er í frétt frá Samherja haft eftir Smára Jósafatssyni íframkvæmdastjóri Ekkó, að hlerunum sé ætlaða að skila verulegum olíusparnaði en þeir eru tæplega átta fermetrar að stærð, hvor hleri.

Mikið í húfi að ná fram olíusparnaði
Hákon Þ. Guðmundsson útgerðarstjóri Samherja segir á heimasíðu Samherja að að félagið hafi í gegnum tíðina fylgst vel með nýjungum í veiðarfæragerð og tekið þátt í þróun fjölmargra verkefna.
„Íslendingar eru um margt framarlega á þessu sviði sjávarútvegs og Ekkó hlerarnir eru ágætt dæmi um þá staðreynd. Með kaupum á þessum nýju hlerum viljum við styrkja verðugt og áhugavert frumkvöðlaverkefni, væntanlega skýrist á næstu mánuðum hvernig þeir reynast. Það er of snemmt að draga ályktanir eftir eina eða tvær veiðiferðir, aðstæðurnar geta verið svo misjafnar. Olíuverð hefur hækkað gríðarlega á undanförnum misserum, þannig að það er klárlega mikið í húfi. Þróun hleranna hefur tekið nokkur ár, þannig að framleiðendurnir hafa greinilega vandað vel til verka,“ segir Hákon Þ. Guðmundsson.

Smári Jósafatsson, framkvæmdastjóri Ekkó toghlera fór sjálfur með í fyrsta Björgúlfs EA þar sem hlerar frá fyrirtæki hans voru notaðir. Myndir: samherji.is

Tímamóta togarhlerar
„Ég segi hiklaust að hlerarnir marki merk tímamót. Vænglaga formið er eins og skel, bakplatan er krappari en framplatan. Þetta þýðir að hlerinn togar sig út með allt öðrum hætti en aðrar tegundir hlera og eru líka dregnir á miklu minna horni. Sérstakur loftlás sem er í rými innan í skelinni stýrir auk þess hlerunum nær eða fjær yfirborðinu, sem er ótvíræður kostur. Auk þess sem hægt er að þyngja hlerana eða létta,“ segir Smári um Ekkó hlerana sem byrjað var að rþóa árið 2012. Þeir hafa nú fengið einkaleyfi í Bandaríkjunum, Evrópu, Rússlandi, Kína og nýverið í Ástralíu.

Miklir fjármunir í húfi
„Samkvæmt okkar útreikningum dregst olíunotkun fiskiskipa á veiðum saman að jafnaði um tólf prósent miðað við aðrar tegundir toghlera, þannig að við erum að tala um verulegar fjárhæðir. Þegar olíuverð er í hæstu hæðum skiptir hvert prósent miklu máli, ég tala nú ekki um þegar sparnaðurinn er kominn upp í tveggja stafa tölu,“ segir Smári sem fór sjálfur í fyrsta túrinn sem Björgúlfur EA notaði hlerana.
„Það var virkilega gaman að sjá hversu vel þeir virkuðu. Í túrnum voru notaðar tvær tegundir af trollum á ólíkum veiðisvæðum og ég náði að mynda hlerana og skrásetja virknina. Það var líka gaman að vera um borð, Björgúlfur er glæsilegt skip og vel búið á allan hátt. Við fengum á okkur alls kyns veður og skipið haggaðist varla í góðri íslenskri brælu. Áhöfnin er auk þess einstök, valinn maður í hverju rúmi getum við sagt. Þetta var fínn túr, sem ég kem til með að muna eftir lengi,“ segir Smári Jósafatsson í fréttinni.

Deila: