Viðurlög í 27 brottkastmálum

Deila:

Á síðasta árið lauk Fiskistofa meðferð 27 brottkastmála með ákvörðun um viðurlög. Þá veitti 18 áminningar á árinu og í níu málum voru skip svipt veiðileyfum. Tvö skip misstu veiðileyfi sitt í viku og fimm skip svipt leyfi í tvær vikur. Þá voru brot tveggja skipa talin meiriháttar og voru hlutaðeigandi skip svipt leyfi annars vegar í fjórar vikur og hins vegar í átta vikur. Voru þau mál jafnframt kærð til lögreglu, segir í samantekt Fiskistofu.

Í öllum tilvikum höfðu veiðieftirlitsmenn Fiskistofu eftirlit með veiðum skipanna með drónum. Brotamálum vegna brottkasts hefur fjölgað mjög eftir að drónar voru teknir í notkun hjá Fiskistofu árið 2021.

„Fiskistofa birtir ákvarðanir um sviptingu veiðileyfa skv. lögum um Fiskistofu. Stuðlar birtingin að gagnsæi í störfum Fiskistofu sem og fyrirsjáanleika fyrir þá sem starfa í greininni og er til þess fallin að auka varnaðaráhrif ákvarðana Fiskistofu,“ segir á vef stofnunarinnar.

Deila: