Huga þarf að skipum og bátum í höfnum

Deila:

Landhelgisgæslan vekur athygli á að nú er stækkandi straumur og verður stórstreymt á morgun. Á sama tíma er spáð   sunnan og suðvestan stormi, jafnframt því. sem ölduspár gera ráð fyrir mikilli ölduhæð á morgun, þriðjudag.

„Má því reikna með aukinni sjávarhæð vegna áhlaðanda með suður og vesturströndinni. Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu með ströndinni og að hugað verði að skipum og bátum í höfnum,“ segir í frétt hennar.

Deila: