Tilbreyting að veiða í góðu veðri!

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 55 tonnum á Seyðisfirði á föstudagsmorgun eftir stutta veiðiferð. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir á vef Síldarvinnslunnar að að veitt hafi verið í fínasta veðri á fimmtudaginn og það segir hann hafa verið góða tilbreytingu eftir sjóganginn að undanförnu.
„Þetta var stuttur túr, einungis rúmir tveir sólarhringar á sjó. Upphaflega áttum við að landa á mánudag en það vantaði fisk í vinnsluna og því komum við fyrr til löndunar. Veiðin gekk vel og aflinn var nær eingöngu þorskur og ýsa. Við byrjuðum í Berufjarðarálnum en færðum okkur síðan í Litladýpið,“ segir Þórhallur skipstjóri en Gullver hefur haldið til veiða á ný.

Á meðfylgjandi mynd Ómars Bogasonar sem birtist á vef Síldarvinnslunnar er Gullverið við bryggju á Seyðsfirði.

Deila: