Láta þorsk og ýsu í friði

Deila:

Tvær síðustu veiðiferðir Vestmannaeyjar VE og Bergs VE hafa verið skraptúrar, segir á vef Síldarvinnslunnar. Áhersla hafi verið lögð á að veiða karfa, ufsa og lýsu en þorskur og ýsa  látin í friði. Að loknum fyrri túrnum var landað 15. og 16. febrúar en úr seinni túrnum lönduðu skipin nú um helgina. Bæði skip héldu síðan á ný til veiða í gærmorgun.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að þokkalegt kropp hafi verið í báðum túrum.

„Þetta gekk bara ágætlega og við vorum á miðunum hérna í kringum Eyjar; í Háadýpinu, á Sneiðinni og vestan við Gjá. Það verður að sinna fleiri tegundum en þorski og ýsu og því kemur alltaf að skraptúrum. Bæði skip voru með um 50 tonna afla í hvorum túr. Og nú eru þau bæði á leið austur með landinu. Það á að kíkja á ýsu,“ segir Birgir Þór.

Deila: