Meint olíumengun reyndist vera loðna

Deila:

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar varð í liðinni viku vör við dökka flekki í sjónum allt í kring um Reykjanesskagann, að því er fram kemur í Facebook-færslu stofnunarinnar. Það var áhöfn TF-GNA sem var á flugi á svæðinu.

Fram kemur að eftir stutta skoðun hafi í ljós komið að ekki hafi verið um mengun að ræða heldur loðnutorfur. „Fjöldi uppsjávarveiðiskipa voru á svæðinu, þar á meðal fjögur færeysk loðnuskip á ferðinni en eitt þeirra var á veiðum. Flogið var um Garðskaga, fyrir Reykjanes og austur að Surtsey,“ segir í færslunni.

Áhöfnin ákvað í leiðinni æfa hífingar við Þrídranga. Sigmanni var slakað niður og hann athugaði hvort allt væri eins og það ætti að vera í vitahúsinu. Svo reyndist vera. „Að því búnu var sigmaðurinn hífður upp aftur, haldið til Heimaeyjar þar sem eldsneyti var sett á vélina og flogið til Reykjavíkur.“

Deila: