Línuívilnun í löngu felld niður

Deila:

Frá og með 5. apríl 2023 er felld niður línuívilnun í löngu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Fiskistofu.

Í reglugerð um línuívilnun segir að Fiskistofa fylgist með línuafla og tilkynni ráðuneytinu hvenær líklegt megi telja að viðmiðunarafla hvers tímabils verði náð… Fiskistofa tilkynnir síðan frá hvaða degi tiltekinn afli reiknast að fullu til aflamarks.

Deila: