Grásleppuverð á mörkuðum hrynur

Deila:

Verð fyrir kíló af grásleppu hefur á mörkuðum fallið hratt í þessari viku. Eins og Auðlindin greindi frá í síðustu viku fengu grásleppukarlar sem byrjuðu snemma að veiða gott verð fyrstu daganna. Undan því hefur fjarað í þessari viku, samhliða auknu framboði.

Sjá einnig: Helmingi hærra verð en í fyrra

Í dag voru 11 tonn seld á mörkuðum og meðalverðið var 174 krónur á kílóið.

 

Deila: