KAPP kaupir allt hlutafé í RAF ehf.

Deila:

Samningur um kaup fyrirtækisins KAPP á öllu hlutafé í hátæknifyrirtækinu RAF ehf. var undirritaður á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í gær, mánudag.     KAPP þjónustar fyrirtæki í matvælavinnslu til sjós og lands og er kæling matvæla þar í lykilhlutverki. Fyrirtækið rekur einnig véla- og renniverkstæði og sér auk þess um innflutning á kælitækjum frá Incold, Carrier og Titan containers svo eitthvað nefnt.

Haft er eftir Frey Friðrikssyni, eiganda KAPP, að hann sjái þarna tækifæri til frekari vaxtar KAPP. „Ég met það svo að sú mikla þekking og reynsla starfsfólks RAF sem og sá vélbúnaður sem fyrirtækið framleiðir muni styrkja KAPP til frekari sóknar í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi,” er haft eftir honum í tilkynningu.

RAF hefur sérhæft sig í vélasmíði, innflutningi og þjónustu á tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað.

Valþór Hermannsson, sem stýrt hefur RAF í tæp 20 ár, segir að sameiginlega munu félögin bjóða enn betri þjónustu, styrkja framleiðslu á vörum fyrirtækjanna og þróa nýjar og spennandi lausnir á komandi árum. Hann segir að engar breytingar verði á starfsmannahaldi RAF eða þeirri þjónustu og búnaði sem RAF hefur boðið viðskiptavinum sínum um árabil „Með KAPP munu auknir kraftar losna úr læðing þar sem mikill mannauður og reynsla sameinast í þessum tveimur fyrirtækjum,” er haft eftir Valþóri, sem kemur jafnframt inn í stjórnendateymi KAPP.

Á myndinni eru Hjalti Halldórsson, Valþór Hermannsson og Freyr Friðriksson, í Barcelona.

Deila: