Ræddu samvinnu Íslands og Noregs

Deila:

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra átti nýverið tvíhliða fund með Björnar Skjæran sjávarútvegsráðherra Noregs. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Ráðherrarnir ræddu meðal annars um samvinnu ríkjanna í sjávarútvegi, ástand fiskveiðistofna og almenna stöðu sjávarútvegs.

Í fréttinni segir að matvælaráðherra haf lýst yfir ánægju sinni með fundinn.

„Ísland og Noregur geta lært mikið hvort af öðru,“ er haft eftir ráðherra. „Íslendingar eru stoltir af sínum sjávarútvegi, og það er full ástæða til þess að vera það. Nú er áhersla lögð á að draga úr skaðlegum afleiðingum greinarinnar fyrir umhverfið, betri nýtingu hráefna og nýsköpun.“ Ráðherra taldi einnig mikilvægt að ríkin tvö ættu viðræður um deilistofna og að samkomulag næðist þar að lútandi.

Ráðherrarnir ræddu að auki umhverfis- og öryggismál og lagði Björnar Skjæran áherslu á að ríkin haldi áfram góðri samvinnu á alþjóðavettvangi.

Deila: