Fölsk afsökunarbeiðni send í nafni Samherja

Deila:

Svo virðist sem óprúttnir aðilar hafi sent erlendum fjölmiðlum falsaða fréttatilkynningu, afsökunarbeiðni, í nafni Samherja. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja. Þá virðast sömu aðilar hafa sett upp falska heimasíðu í nafni fyrirtækisins sem hýst er í Bretlandi og samhliða dreift fölsuðum auglýsingaborðum, að því er segir í fréttinni.

„Tekið skal fram að hvorki heimasíðan né fréttatilkynningin hafa nein tengsl við Samherja eða starfsmenn fyrirtækisins. Svo virðist sem um sé að ræða skipulagða árás sem fyrirtækið tekur mjög alvarlega. Samherji mun óska eftir því að hin falska vefsíða verði tekin niður.”

Deila: