Tilkynna skal um túnfisk

Deila:

Túnfiskur getur veiðst sem meðafli í uppsjávarveiðum því viljum við vekja athygli á að það þarf að tilkynna allan túnfiskafla til Fiskistofu sem fyrst. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.

Túnfiskmeðafli reiknast af túnfiskkvóta Íslands og er allur túnfiskur tilkynningaskyldur til ICCAT, Alþjóðaráðsins um varðveislu Atlantshafstúnfisks.

Upplýsingar um túnfisk sem meðafla sendast á meðfylgjandi eyðublaði á fiskistofa@fiskistofa.is

Deila: