FMS og Fiskmarkaður Vestfjarða sameinast

Deila:

FMS hf. og Fiskmarkaður Vestfjarða hf. hafa sameinast í eitt fyrirtæki undir nafni og kennitölu FMS hf. Þetta kemur fram á vef FMS.

Á síðunni kemur fram að frá og með 23. júní n.k. muni öll starfsemi fiskmarkaðarins í Bolungarvík fara fram undir merkjum FMS Bolungarvíkur. Viðskiptavinum sé bent á að beina öllum sínum erindum á FMS Bolungarvík eða á aðalskrifstofu FMS.

Starfsemi FMS í Bolungarvík verður óbreytt að öðru leyti. Frekari upplýsingar veita undirritaður eða Samúel Samúelsson FMS í Bolungarvík.

Deila: