Blendingar fundust í fjölmörgum íslenskum ám

Deila:
laxaseiði hafrannsóknastofnun

Blendingar af fyrstu kynslóð fundust í 133 tilvikum í rannsókn Hafrannsóknastofnunar á erfðablöndun villts íslensks lax og eldislax af norskum uppruna. Blendingarnir fundust í 17 ám og í 2,1% þeirra sýna sem tekin voru. Eldri blöndun greindist í 141 seiðum í 26 ám.

Þetta kemur fram á vef Hafró sem gefið hefur út skýrslu um niðurstöðurnar. Í skýrslunni er greint frá erfðarannsóknum á sýnum af laxi úr 89 ám hringinn í kringum landið. Lögð var áhersla á ár í nálægð við sjókvíaeldissvæði. Fjöldi sýna var alls 6.348 laxaseiði.

Rannsóknin greindi sýni sem rekja má til hrygningar á árunum 2014 til 2019. Á þeim árum var framleiðslumagn í laxeldi í sjókvíum að meðaltali 6900 tonn.

Fyrstu kynslóðar blendingar voru, samkvæmt skýrslunni, algengari á Vestfjörðum en Austfjörðum sem er í samræmi við að eldið á Austfjörðum hófst síðar og hefur verið umfangsminna.

Eldri erfðablöndun var tíðari á Austfjörðum en Vestfjörðum og tengist líklegast eldinu sem þar var starfrækt í byrjun þessarar aldar. Eldri erfðablöndun var mest áberandi í Breiðdalsá og greindist í 32% (72 af 228) seiðanna.

Erfðablöndun greindist yfirleitt í minna en 50 km fjarlægð frá eldissvæðum en nokkrir blendingar fundust í allt að 250 km fjarlægð.

Fram kemur að frekari rannsókna sé þörf.

Erfðablöndun villts íslensks lax (Salmo salar) og eldislax af norskum uppruna

Deila: