Stór og fallegur makríll

Deila:

Makríllinn sem Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur verið að vinna að undanförnu er stór og fallegur. Í gær var lokið við að vinna makríl úr Berki NK. Í gærkvöldi komi Beitir NK að landi með 1100 tonn og hófst vinnsla úr honum strax. Haft er eftir Tómasi Kárasyni á skipstjóra að um væri að ræða 520 til 530 gramma fisk.

Hann segir að bræla hafi ríkt á miðunum að undanförnu. „Við vorum að veiðum 120 mílur austsuðaustur af Norðfjarðarhorni en nú eru bátarnir komnir töluvert norðar og fengu sumir þokkalegasta afla í gærkvöldi. Færeyingar voru að fiska mjög vel inni í færeysku lögsögunni í gær. Þeir voru að fá allt upp í 600 tonna hol. Gera má ráð fyrir að fiskurinn gangi norðvestur eftir og inn í íslenska lögsögu. Við erum fimm Síldarvinnslu- og Samherjaskip í samstarfi um veiðarnar og það gengur mjög vel. Við byrjuðum á þessu veiðisamstarfi og nú hafa ýmsir aðrir fetað í okkar fótspor. Samstarfið er einkar mikilvægt þegar ekki veiðist mikið því þá er verið að koma með ferskari afla að landi en ella. Þessi vertíð er frábrugðin vertíðinni í fyrra að því leyti að miklu meira hefur veiðst innan íslenskrar lögsögu. Í fyrra voru menn mest í Smugunni en þar hefur verið lélegt núna. Ég er bjartsýnn varðandi framhaldið. Þó veiðin sé misjöfn frá einum tíma til annars þá lítur þetta ágætlega út og það sem er kannski mikilvægast er að veiðin skuli vera innan íslenskrar lögsögu,” er haft eftir honum.

Deila: