Nýr framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar

Deila:

Garðar Svavarsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. Fáskrúðsfirði. Þetta kemur fram á vef Loðnuvinnslunnar. Fram kemur að Garðar taki við af Friðriki Mar Guðmundssyni sem lætur af störfum á haustmánuðum eftir 19 ára starf hjá félögunum, þar af sem framkvæmdastjóri undanfarin 10 ár. Garðar er sjávarútvegsfræðingur og kemur frá Brimi, þar sem hann hefur starfað í 24 ár, undanfarinn áratug sem forstöðumaður uppsjávarsviðs.

Fram kemur að Loðnuvinnslan sé að mestu leyti í eigu kaupfélagsins. Rekstur Loðnuvinnslunnar hafi gengið vel undanfarin ár og var árið 2022 hafi verið besta ár í sögu félagsins. Eigið fé félagsins hafi fimmfaldast á undanförnum 10 árum, farið úr 3 milljörðum í 16 milljarða, og hagnaður hafi verið samtals 14,5 milljarðar. Stjórnir beggja félaganna þakka Friðriki fyrir öfluga uppbyggingu og farsælt starf í þágu þeirra á liðnum árum.

„Ég vil þakka fyrir það traust og þann stuðning sem ég hef fengið frá starfsfólki og stjórn félaga á liðnum árum. Ég  er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð saman. Jafnframt er ég þakklátur því að jafn reynslumikill og traustur maður og Garðar Svavarsson taki við keflinu í haust og leiði fyrirtækið inn í nýja tíma,“ er haft eftir Friðriki Mar Guðmundssyni.

Deila: