Makríll við suðurströndina

Deila:

Bráðbirgðaniðurstöður mælinga rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar sýna að þéttleiki makríls í íslenskri landhelgi var álíka mikill í sumar og síðastliðið sumar. Útbreiðslusvæðið var hins vegar minna. Árni Friðriksson lauk þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum að sumarlagi þann 21. júlí.

Í þessum 19 daga leiðangri Árna kringum landið voru teknar 43 togstöðvar og sigldar um 3250 sjómílur eða 6 þúsund km. Þá voru gerðar sjómælingar og teknir átuháfar á öllum yfirborðstogstöðvum.

Fram kemur á vef Hafró að rannsökuð hafi verið útbreiðsla og þéttleiki makríls, síldar og kolmunna í íslenskri landhelgi að undanskildum suðaustur hluta hennar sem Færeyingar rannsökuðu.

Makríll fannst að sögn aðallega á landgrunninu og landgrunnsbrúninni meðfram suðurströnd landsins og fáeinir fiskar fengust fyrir vestan landið. Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíld að finna á flestum togstöðvum fyrir norðan og austan landið og íslenska sumargotssíld á landgrunninu fyrir sunnan og vestan landið.

Kynþroska kolmunni mældist við landgrunnsbrúnina sunnan og vestan við landið í álíka þéttleika og síðasta sumar.

Bráðabirgðaniðurstöður sýna að hitastig í yfirborðslagi sjávar var álíka og sumarið 2022 fyrir sunnan og vestan landið en kaldara fyrir norðan.

Deila: