Afbragðsgóð makrílveiði austan við land

Deila:

Góð makrílveiði hefur verið austan af landinu síðustu daga, að því er fram kemur í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að skip hafi verið að fá um og yfir 400 tonn í holli. Síldarvinnslu- og Samherjaskipin sem eru í veiðisamstarfi voru að veiðum 80 til 100 mílur austur af Norðfjarðarhorni.

Í fréttinni kemur fram að Margrét EA hafi komið til Neskaupstaðar með 1.150 tonn síðastliðinn miðvikudag. Þá hafi vinnslu 1.500 tonnum úr Beiti verið að ljúka. Vilhelm Þorsteinsson EA kom svo með 1.650 tonn til hafnar í gær og þá voru skipin byrjuð að setja afla um borð í Barða.

„Vinnslan í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar er því samfelld og einungis gert hlé á henni til að þrífa. Fiskurinn sem skipin færa að landi er mjög stór eða um og yfir 600 grömm og er hann fullur af átu. Átan í fiskinum gerir það að verkum að ekki er unnt að heilfrysta hann heldur er hann annaðhvort hausaður eða flakaður.

Fréttir herma að makrílveiði sé heldur að glæðast í Smugunni en þar eru grænlensku skipin Polar Amaroq og Polar Ammassak að veiðum.”

Deila: