Þjóðhátíðarstopp hjá Bergi

Deila:

Ísfisktogarinn Bergur VE er kominn í þjóðhátíðarstopp. Togarinn landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gær en hann landaði einnig fullfermi síðastliðinn miðvikudag. Frá þessu greinir á vef Síldarvinnslunnar.

Haft er eftir Jóni Valgeirssyni skipstjóra að aflinn hafi verið þorskur og ýsa. „Þorskurinn sem fæst er virkilega vænn og flottur og ýsan sem fæst þarna fyrir austan er að éta þar síldarhrogn og þá er ósköp auðvelt að ná henni. Veðrið hefur verið ágætt að undanförnu en nú í síðasta túr var kaldadrulla á leiðinni austur. Nú erum við komnir í þjóðhátíðarstopp og það verður ekki haldið til veiða á ný fyrr en eftir viku. Menn munu örugglega skemmta sér vel þessa þjóðhátíðardaga og mæta ferskir um borð fyrir næsta túr. Annars má segja að hjá okkur gangi veiðin bara eins og smurð vél og það er fátt hægt að segja nema góðar fréttir,“ er haft eftir Jóni.

Deila: