Vinnsla hafin á Seyðisfirði

Deila:

Á þriðjudaginn hófst vinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði að lokinni rúmlega mánaðar sumarlokun. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar. Þar er haft eftir Róberti Inga Tómassyni framleiðslustjóra að fólk hafi mætt hresst og kátt til starfa „Það er ekki alveg fullmannað hjá okkur strax og það tekur ávallt einhvern tíma að snúa öllu í gang. Við byrjum á að vinna ufsa, sem kom úr Bergi VE, og síðan þorsk, sem Gullver NS kom með. Þetta lítur allt ljómandi vel út,“ segir Róbert.

Í fréttinni segir einnig frá því að Gullver hafi landað 86 tonnum á Seyðisfirði í gær, eftir fjóra daga á veiðum. Helmingur aflans var þorskur en einnig karfi, ýsa og ufsi. Aflinn fékkst á Fætinum, Hvalsbakshalla, Berufjarðarál, Papagrunni og Lónsbugt. Gullver heldur aftur til veiða í kvöld.

Deila: