Sjö þúsund skoðuðu fiskvinnsluhús Samherja

Deila:

Á vef Samherja kemur fram að áætlað sé að hátt í sjö þúsund manns hafi skoðað fiskvinnsluhús fyrirtækisins á Dalvík, sem opið var almenningi á Fiskidaginn mikla, sem fram fór um helgina. Á síðunni segir að húsið hafi vakið athygli fyrir framúrskarandi tæknilausnir og góðan aðbúnað starfsfólks.

Haft er eftir Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra að stemningin á Fiskideginum mikla á Dalvík sé einstök. Mikil samstaða íbúanna og hlýhugur og gleði sé allsráðandi.

„Í mínum huga undirstrikar hátíðin með skýrum hætti að Dalvíkingar eru stoltir af því að sjávarútvegur er helsta atvinnugreinin, enda eru þeir sjómenn og fiskvinnslufólk í fremstu röð. Samherji er stór vinnuveitandi í sveitarfélaginu og við bjóðum gestum hátíðarinnar að smakka afurðir okkar með mikilli ánægju og stolti. Ég þakka þeim sem sjá um framkvæmd hátíðarinnar kærlega fyrir einstaklega farsæla samvinnu í gegnum árin en fyrst og fremst er Fiskidagurinn mikli risastórt heimboð íbúanna og þökkum við Dalvíkingum fyrir óviðjafnanlegar móttökur.”

Myndirnar eru af vef Samherja.

Deila: