Skaginn 3X selur fyrir hálfan milljarð í Noregi

Deila:

Tæknifyrirtækið Skaginn 3X hefur á síðustu misserum skrifað undir stóra samninga við norsk hvítfisk- og laxafyrirtæki. Heildaverðmæti þessara samninga er upp á hálfan milljarð króna og má þess geta að samningurinn við laxafyrirtækið er stærsti einstaki samningur fyrir Ísafjarðarhluta fyrirtækisins frá upphafi.

Þessir samningar innihalda SUB-CHILLING™ kerfi sem er einnig stærsti tankur sem fyrirtækið hefur framleitt og uppþýðingarkerfi fyrir Leroy Norway Seafoods Group sem er einn af stærstu hvítfiskframleiðendum í Skandinavíu.

Ragnar Guðmundsson, sölustjóri Skagans 3X í Skandinavíu segir mikil tækifæri fyrir íslensk tæknifyrirtæki í sjávar og laxaiðnaðinum í Noregi. „Það virðist vera mikil hreyfing varðandi endurnýjun á vinnslubúnaði í Noregi og Norðmenn horfa sérstaklega til nýrrar tækni sem gefur betri sjálfvirkni, gæði og nýtingu á aflanum. Fyrirtækið hefur fengið mikla athygli sérstaklega meðal laxaframleiðenda í Noregi og nýjasta uppsetning fyrirtækisins í Noregi var rétt að ljúka en það var uppsetning á SUB-CHILLING kerfi fyrir norska laxarisann Grieg Seafood,“ segir Ragnar.

Verkefnastaða fyrirtækisins hefur aldrei verið betri og eru pantanir farnar að hlaðast upp vel fram á næsta ár.

Frétt og mynd af bb.is

 

Deila: