Lífmassi makríls minnkaði um 42% á milli ára

Deila:

Vísitala lífmassa makríl mældist 42% lægri í uppsjávarleiðangri sumarsins, samanborið við í fyrra. Um er að ræða minnsta lífmassa sem mælst hefur síðan 2007.

Þetta eru meginniðurstöður úr sameiginlegum uppsjávarleiðangri Íslendinga, Færeyinga, Norðmanna og Dana sem farinn var á tímabilinu 1. júlí til 3. ágúst 2023. Meginmarkmið þessa árlega leiðangurs var að meta magn uppsjávarfiska í Norðaustur-Atlantshafi að sumarlagi en jafnframt að rannsaka vistkerfi og umhverfi sjávar. Leiðangurssvæðið var 2,4 milljón ferkílómetrar sem er 19% minna en síðasta ár þar sem ekki var farið inn í Grænlenska landhelgi og einungis suður að 62°N breiddargráðu í Íslandsdjúpi.

Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastofnunar. Vísitalan var metin 4,3 milljón tonn. Það er 40% minna en langtímameðal (7,1 tonn) gefur til kynna. Vísitalan byggir á afla í alls 218 stöðluðum yfirborðstogum á fyrirfram ákveðnum stöðvum. Engar togstöðvar voru með einstaklega mikinn afla líkt og sumarið 2022, og óvissumörk í kringum matið því mun minni í ár.

„Útbreiðsla makríls við Ísland í ár var minni en síðasta ár. Mesti þéttleikinn var fyrir sunnan land og var hann að finna bæði yfir landgrunninu og við landgrunnsbrúnina. Lítið mældist af makríl fyrir vestan land samanborið við 2022. Um 10,3% af heildarlífmassa makríls mældist í íslenskri landhelgi samanborið við 18,9% síðasta ár. Líkt og undanfarin ár var meiri hluti stofnsins í Noregshafi og þá sérstaklega norðaustan til,” segir í fréttinni.

Deila: