Góður gangur í síldveiðum

Deila:

Börkur NK kom til Neskaupstaðar í nótt með 1.500 tonn af norsk – íslenskri síld, að því er greinir frá á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Rætt er við Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra sem segir veiðar hafa gengið vel. „Við fórum út á föstudag, leituðum í sólarhring og hófum síðan veiðar grunnt í Héraðsflóadýpinu. Þarna voru litlar torfur en þær voru þéttar og gáfu afskaplega vel. Aflann fengum við í fimm holum og var dregið í 2 – 5 tíma. Þetta er falleg síld sem þarna fæst, meðalþyngdin er 370 – 380 grömm. Það er nánast engin áta í síldinni þannig að hér er um fínasta hráefni að ræða til manneldisvinnslu. Það mun líklega taka eina tvo sólarhringa að landa aflanum en mér skilst að mikið af honum verði heilfryst. Þessi síldveiði byrjar vel og mér líst ágætlega á framhaldið,“ er gaft eftir honum.

Þess er getið að Beitir NK hafi haldið til makrílveiða í Smugunni sl. föstudag.

Deila: