Jólasíldin undirbúin

Deila:

Í lok september hófst vinna við framleiðslu á hinni geysivinsælu jólasíld Síldarvinnslunnar. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Þar segir að sérstakur svipir komi á menn þegar rætt sé um jólasíldina. Þeir verði afar spenntir og byrji að sleikja út um. Síldin hefur að sögn verið framleidd í áratugi og er farið eftir ströngustu reglum við framleiðsluna. Uppskriftin að síldinni mun vera leyndarmál.

Á vefnum segir að þeir sem lengst hafi stýrt framleiðslu jólasíldarinnar séu Haraldur Jörgensen og Jón Gunnar Sigurjónsson. Jón Gunnar hafi reyndar stýrt framleiðslunni í hátt í 40 ár og þó svo að hann hafi látið af störfum hjá Síldarvinnslunni hafi hann komið og leiðbeint mönnum nú þegar vinnan við framleiðsluna hófst.

Á vefnum er ferlið rakið.

„Það er margt sem hafa þarf í huga þegar kemur að framleiðslu jólasíldarinnar. Númer eitt er að fá gæðasíld til að vinna með. Síldin þarf að vera norsk – íslensk, stór og fersk, veidd skammt austur af landinu. Byrjað er á að flaka síldina og síðan eru flökin brytjuð niður í hæfilega bita. Bitarnir eru síðan settir í tunnur þar sem þeir liggja og marinerast í um mánaðartíma. Loks er síldin sett í fötur og ásamt henni fer ýmislegt með í föturnar til að fáist hið eina sanna bragð. Ótrúlega margir hafa kveðið upp þann dóm að jólasíldin frá Síldarvinnslunni sé besta síld í heimi. Jólasíldin er framleidd fyrir starfsfólk Síldarvinnslunnar og þá sem tengjast fyrirtækinu. Hosurnar, líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, fær þó síld í ákveðnu magni sem er seld til styrktar sjúkrahúsinu. Það ríkir ávallt mikið fjör þegar jólasíldin er sett í föturnar og mun heimasíðan greina frá því þegar þar að kemur.“

Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Deila: