18% aukning verðmæta á milli ára

Deila:

Útflutningsverðmæti sjávarafurða 2022 var 352 milljarðar króna og jókst um 18,3% frá fyrra ári. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þorskafurðir námu 40% af útflutningsverðmætinu og seldust þær fyrir um 141 milljarð króna.

Á vefnum segir að landaður afli hafi verið 1.416 þúsund tonn, sem sé 23% meiri afli en árið á undan. Aflaverðmæti við fyrstu sölu jókst um 20%, úr 162 milljörðum króna í 195 milljarða. Aukningin skýrist að mestu af meiri uppsjávarafla.

„Mest var flutt út af sjávarafurðum til Noregs eða um 167 þúsund tonn að verðmæti 40 milljarða króna. Var þar mestmegnis um að ræða kolmunna, loðnu og síld til bræðslu. Álíka verðmæti fengust fyrir útflutning til Frakklands þar sem magnið var um 40 þúsund tonn, þar af voru 20 þúsund tonn af þorskafurðum. Mest útflutningsverðmæti árið 2022 var fyrir sölu sjávarafurða til Bretlands, eða um 54 milljarðar króna.“

Deila: