„Eins gott og það getur verið“

Deila:

Beitir NK kom til Neskaupstaðar á þriðjudag með 1.420 tonn af íslenskri sumargotssíld sem fékkst vestur af landinu. Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að vinnsla aflans gangi vel. Í kjölfar Beitis hafi Vilhelm Þorsteinsson EA komið með 1.780 tonn að landi.

Rætt er við Geir Sigurpál Hlöðversson, rekstrarstjóra fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, sem ber að hráefnið sé gott. „Þetta er fyrirtaks síld og það gengur ágætlega að vinna hana. Við erum að flaka og framleiðum bæði roðlaus flök og samflök. Síldin er ágætlega stór og það hefur ekki orðið vart við neina sýkingu í henni. Þá er afar lítil áta í henni. Þetta er semsagt eins gott og það getur verið,“ er haft eftir honum.

Deila: