Fjarar undan síldveiði

Deila:

Hægst hefur á veiði á íslenskri sumargotssíld. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að veiði hafi verið góð síðustu daga en það hafi breyst hratt. Lokið hafi verið við að landa 1.200 tonnum úr Beiti NK á miðvikudag en í gærmorgun hafi Vilhelm Þorsteinsson EA komið að landi með 1.410 tonn.

Í fréttinni er rætt við Hálfdán Hálfdánarson skipstjóra á Berki. „Veiðarnar hafa gengið heldur hægt núna að undanförnu en það getur breyst fyrirvaralaust. Á þessum veiðum koma góðir dagar og slakari dagar. Við erum að veiðum djúpt vestur af Faxaflóa og hefur skipum á miðunum farið fjölgandi síðustu dagana. Segja má að allt sé hefðbundið hvað veiðarnar varðar, veitt er á hefðbundnum slóðum miðað við síðustu ár og ekkert sem kemur á óvart. Síldin sem fæst er býsna góð. Þetta er 300 – 330 gramma síld og átan í henni er afar lítil. Þá ber að fagna því að sýkingin sem hefur hrjáð þessa síld lengi virðist vera horfin eða nánast horfin. Það er gleðiefni. Reyndar hefur þessi sýking verið misjöfn á milli ára, en vonandi eru menn að verða lausir við hana,“ segir Hálfdan.

Fram kemur að hráefnið hafi verið mjög gott, lítið hafi verið um sýkingar og afurðin því góð og verðmæt. Vertíðin hafi því gengið vel.

Deila: