Samningur um rekstur Herjólfs

Deila:

Skrifað var undir endurnýjaðan þjónustusamning um rekstur Herjólfs í síðustu viku en það gerðu Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2024 til 31. desember 2026 með möguleikaum á framlengingu í tvö ár til viðbótar. Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar.

Þar segir að samningurinn byggi á reynslu fyrri ára í rekstri Vestmannaferjunnar Herjólfs sem Herjólfur ohf. hefur séð um fyrir Vestmannaeyjabæ.

„Reynsla í rekstri skipsins hefur verið lærdómsrík þar sem verið er að láta reyna á nýja tækni á rafmagnsknúnu skipi, tengitvinnferju.  Skipið hefur reynst vel í alla staði og horfa aðilar samnings bjartir fram á veginn í framtíð siglinga með Herjólfi á milli lands og Eyja,” segir í fréttinni. Þar kemur fram að verðmæti samningsins er áætlað á ársgrundvelli 818 m.kr  en er háð fjárveitingum ríkissjóðs á hverju ári.

Haft er eftir Bergþóru Þorkelsdóttur sagði ánægjulegt sé að hafa endurnýjað samninginn og halda þannig áfram að þróa reksturinn því í raun hafi verið um þróunarverkefni að ræða síðan að nýr Herjólfur tók við siglingum.

Deila: