Fundað um stjórn fiskveiða á Kaffi Catalína

Deila:

Fundur verður haldinn um stjórn fiskveiða í dag, fimmtudaginn 23. nóvember. Fundarstaður er Kaffi Catalína, að Hamraborg 11, í Kópavogi og hefst hann klukkan 17. Fundarstjóri verður Grétar Mar Jónsson. Frá þessu er greint á vef Landssambands smábátaeigenda.

Dagskrá fundarins:

Frummælendur:

  • Sigurjón Þórðarson, líffræðingur og varaþingmaður – Hvers vegna mun aflaregla Hafró aldrei ganga upp?
  • Eivind Jacobsen frá Færeyjum – Leggur fram gögn sem gefa skýrt til kynna að tvöfalda megi þorskafla á Íslandsmiðum.
  • Jón Kristjánsson, fiskifræðingur – Hvers vegna leiða kvótakerfi alltaf til minnkaðs afla?
  • Sveinbjörn Jónsson – Fjallar um hafrannsóknir.

 

Deila: