Jólasíldin sett í fötur

Deila:
Ljósm: Smári Geirsson

Að undanförnu hefur verið unnið að því í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að setja jólasíld fyrirtækisins í fötur. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að margir bíði spenntir eftir síldinni og telji hana ómissandi hluta jólahátíðarinnar.

„Síldarvinnslusíldin þykir sú besta og fá allir, sem starfa hjá fyrirtækinu eða tengjast því, vatn í munninn þegar á hana er minnst. Síldin er framleidd eftir kúnstarinnar reglum og er farið eftir uppskrift sem hefur verið þróuð í áratugi. Framleiðsluferillinn er ekki gefinn nákvæmlega upp en unnt er að greina frá ýmsum þáttum hans. Í fyrsta lagi er notuð norsk-íslensk gæðasíld til framleiðslunnar og er hún flökuð og skorin í bita nýveidd. Í öðru lagi þarf að láta bitana liggja í saltpækli í ákveðinn tíma og síðan í pækli með tilteknu magni af ediksýru. Í þriðja lagi er síldin sett í fötur og fara ýmsar kryddjurtir með í föturnar sem sjá um að framkalla hið himneska bragð.”

Fram kemur að ávallt ríki stemmning hjá starfsfólki þegar unnið sé við jólasíldina. Margir geti ekki beðið eftir hnossgætinu. „Ár eftir ár heyrist að síldin hafi aldrei verið betri og sýnir það að ávallt er verið að fullkomna framleiðsluna og gera hana ómótstæðilegri. Heyrst hefur að í ár sé jólasíldin einstakt ljúfmeti og er hún í reynd lokaþátturinn á afar vel heppnaðri síldarvertíð.”

Meðfylgjandi mynd tók Smári Geirsson

Deila: