Gjald vegna fiskeldis í sjó

Deila:

Fiskistofa hefur reiknað út gjald vegna fiskeldis í sjó fyrir árið 2024. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Á árinu 2024 verður gjald á hvert kílógramm slátraðs lax 30,77 kr. og gjald á hvert kílógramm slátraðs regnbogasilungs 15,39 kr. Bent er á að frumvarp liggi fyrir Alþingi um breytingu á lögum um gjaldtöku í fiskeldi sem leitt gæti til breytingar á gjaldtökunni.

Deila: