Aflaverðmætið 197 milljarðar króna

Deila:

Aflaverðmæti í október 2023 var um 16 milljarðar króna samkvæmt bráðabirgðatölum sem er 16% samdráttur frá október árið á undan. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabilinu frá nóvember 2022 til október 2023 var óbreytt á milli ára og nam tæpum 197 milljörðum króna, segir þar enn fremur.

Deila: