Arnarlax fær leyfi fyrir nýju eldi við Tálknafjörð

Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Arnarlaxi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Gileyri við Tálknafjörð. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 1.000 tonna hámarkslífmassa vegna seiðaeldis á laxi og bleikju. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 8. nóvember 2023 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 6. desember 2023.

Þetta kemur fram á heimasíðu Matvælastofnunnar. Fram kemur í tilkynningu að starfsemin sé einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Deila: