Roy Tore Rikardsen nýr forstjóri

Deila:

Roy Tore Rikardsen hefur verið ráðinn forstjóri fiskeldisfyrirtækisins Ice Fish Farm. Hann mun leysa Guðmund Gíslason af hólmi, sem sagði upp stöðunni í haust. Fram kemur í tilkynningu að Rikarsen hafi mikla reynslu á þessu sviði og hafi starfað við fiskeldi í Noregi og Kanada í tvo áratugi.

Hann segist hlakka til ganga til liðs við teymið á Íslandi og hjálpa til við uppbyggingu og þróun greinarinnar og samfélagsins, í lauslegri þýðingu. Hann mun búa á Austurlandi.

Deila: