Reynir kveður Vélfag

Deila:

Reynir B. Eiríksson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri hjá Vélfagi. Bjarmi A. Sigurgarðarsson, annar af stofnendum og einn af eigendum Vélfags, tekur við stöðunni þar til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn. Reynir mun vera stjórnendum innan handar til að tryggja örugga samfellu í yfirfærslu verkefna innan félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir Bjarni A. Sigurgarðarsson framkvæmdastjóri að hann þakki Reyni fyrir mikilvægt framlag hans til framþróunar og vaxtar félagsins á undanförnum árum.

Deila: