Hvernig bregst þorskurinn við fyrir framan botnvörpu?

Deila:

Þann 21. mars næstkomandi fer fram málstofa hjá Hafró um það hvernig þorskur og aðrir nytjafiskar bregðast við fyrir framan botnvörpu. Fyrirlesari verður Haraldur Einarsson fiskilíffræðingur, sem hefur unnið hjá Hafró með hléum frá 1992.

„Í þessari málstofu verður fyrst fjallað stuttlega um þekkingarsvið okkar á áhrifum botnvörpu á lífverur sem lifa ýmist ofan í, ofan á eða við botn á fiskislóð. Hvað er hægt að gera til lágmarka möguleg neikvæð áhrif. En aðal umfjöllunarefnið verður að skýra út niðurstöður frá rannsóknum sem voru gerðar á hegðun nytjafiska fyrir framan botnvörpu.

Þegar botnvarpa er dreginn eftir botni þá safnar hún saman fiskum fyrir framan sem síðan enda inn í vörpunni og safnast í poka vörpunnar. En ekki allir fiskar enda inn í vörpu, sumir fiskar sleppa meðal annars undir vörpuna og þá ýmist við vænghluta eða fyrir miðju. Tegunda- og stærðarmunur er á því hvert hlutfallið er sem sleppur við vænghluta miðað við miðju. En einnig má sjá mun á tegundum og stærðum hvort fiskur stingur sér undir vörpuna eða lendir inni í henni. Lærdómur af þessu gefur okkur mikilvægar vísbendingar um hvernig megi þróa „rockhopperinn“ og fótreipi frekar til að ná árangri í veiðum en um leið lágmarka áhrif veiða á annað líf,” segir í kynningu á vef Hafró.

Sjá nánar hér.

Deila: