Laxey semur um kaup á raforku

Deila:

Landsvirkjun og Laxey ehf. hafa gert með sér samning um sölu og kaup á endurnýjanlegri raforku til uppbyggingar nýrrar landeldisstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. Um er að ræða hátækni matvælaframleiðslu með afar lágt kolefnisspor. Þetta kemur fram á vef Landsvirkjunar.

Þar segir að verkefnið verði byggt upp í áföngum en muni ná fullri stærð 2030. Afhending raforku samkvæmt samningi muni hefjast í apríl 2026 og vaxi samhliða aukinni framleiðslu. Þegar stöðin verði komin í fullan rekstur verður aflþörfin um 22MW.

Laxey kaupir að sögn upprunaábyrgðir fyrir raforkunotkuninni. Því er um að ræða grænan raforkusölusamning.

„Forsenda þess að samningurinn nái fullri stærð er aukin orkuvinnsla Landsvirkjunar en gert er ráð fyrir að Búrfellslundur verði gangsettur síðla árs 2026 og Hvammsvirkjun tveimur árum síðar, 2028. Laxey verður fyrsti stórnotandi raforku í Vestmannaeyjum og verkefnið mun styðja við uppbyggingu flutningsleiða þangað. Gert er ráð fyrir að verkefnið skapi um eða yfir 100 störf,” segir í tilkynningunni.

Þar er bæði rætt við forstjóra Landsvirkjunar og stjórnarformann Laxeyjar:

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Uppbygging Laxeyjar á landeldi er spennandi verkefni sem mun auka verðmætasköpun og útflutning frá Vestmannaeyjum og Íslandi í heild. Ábyrgðarfull og sjálfbær nýting endurnýjanlegra vatns- og orkuauðlinda er í samræmi við forgangsröðun og stefnu Landsvirkjunar í raforkusölu. Það er sérstaklega ánægjulegt að Laxey verði fyrsti stórnotandi raforku í Vestmannaeyjum og muni þannig styðja við áætlanir um bætt raforkuöryggi þar.“

Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar:

„Stefnan hjá Laxey er að áhrif fyrirtækisins á umhverfið verði í algjöru lágmarki og framleiðslan verði í samræmi við ströngustu staðla. Það er því mikilvægt fyrir okkur að nýta græna orkugjafa. Umskipti yfir í græna orku eru nauðsynleg fyrir laxeldisstöðvar á landi til að lágmarka umhverfisfótspor, draga úr kostnaði og viðhalda trausti neytenda á sjálfbærni starfseminnar. Við erum mjög ánægð með þennan samning við Landsvirkjun og erum spennt fyrir komandi samstarfi.“

Deila: