Ekki megi stöðva strandveiðar í júlí

Deila:

Nú er aðeins rétt rúmur mánuður þar til strandveiðar hefjast. Smábátafélag Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum 23. mars sl. ályktun þar sem fram kemur að á engan hátt megi stöðva veiðarnar í júlí eins og gerst hefur undanfarin tvö ár. Stöðva þurfi yfirgang stórútgerðarinnar í að sölsa undir sig veiðiheimilidir sem ætlaðar hafa verið til að efla dreifaðar byggðir. Ályktunin í heild hljómar svo:

„Stjórn Smábátafélags Reykjavíkur skorar á matvælaráðherra að tryggja strandveiðar í 48 daga jafnskipta í fjóra mánuði maí – ágúst. Á engan hátt megi það henda að veiðarnar verði stöðvaðar í júlí eins og gerst hefur undanfarin tvö ár. Stöðva verður yfirgang stórútgerðarinnar í að sölsa undir sig veiðiheimildir sem ætlaðar hafa verið til að efla hinar dreifðu byggðir. Breyta verður reglugerð til að koma í veg fyrir slíkt og færa veiðiheimildirnar til strandveiða. Strandveiðar í fjóra mánuði tryggir jöfnuð milli allra landshluta til farsældar fyrir þjóðina.“

Deila: